Söngstund
![]() |
|---|

Bjartar vonir vakna
Höfundur lags: Oddgeir Kristjánsson. Höfundur texta: Árni úr Eyjum.
Bjartar vonir vakna, í vorsins ljúfa blæ.
Bjarmar yfir björgum, við bláan sæ.
Fagur fuglasöngur, nú fyllir loftin blá,
brjóstin ungu bifast, af blíðri þrá.
Í æðum ólgar blóð í aftansólarglóð,
ég heyri mildan hörpuslátt.
Ég heyri huldumál, sem heilla mína sál,
við hafið svalt og safírblátt.
Komdu vina kæra, ó, komdu út með sjó.
Bylgjur klettinn kyssa, í kvöldsins ró,
viltu með mér vaka þú veist ég elska þig.
Komdu vina kæra og kysstu mig.
Í æðum ólgar blóð í aftan sólarglóð,
ég heyri mildan hörpuslátt.
Ég heyri huldumál, sem heilla mína sál
við hafið svalt og safírblátt.
Komdu vina kæra, ó, komdu út með sjó.
Bylgjur klettinn kyssa, í kvöldsins ró.
Viltu með mér vaka, þú veist ég elska þig.
Komdu vina kæra og kysstu mig.
Aftur á upphafssíðu
Ég veit þú kemur í kvöld til mín
Höfundur lags: Oddgeir Kristjánsson. Höfundur texta: Ási í Bæ.
Ég veit þú kemur í kvöld til mín
þó kveðjan væri stutt í gær.
Ég trúi ekki á orðin þín,
ef annað segja stjörnur tvær
Og þá mun allt verða eins og var
sko áður en þú veist, þú veist.
Og þetta eina sem út af bar
okkar á milli í friði leyst
Og seinna þegar tunglið
hefur tölt um langan veg,
þá tölum við um drauminn
sem við elskum, þú og ég
Ég veit þú kemur í kvöld til mín
þó kveðjan væri stutt í gær.
Ég trúi ekki á orðin þín,
ef annað segja stjörnur tvær
Og seinna þegar tunglið
hefur tölt um langan veg,
þá tölum við um drauminn
sem við elskum, þú og ég
Ég veit þú kemur í kvöld til mín
þó kveðjan væri stutt í gær.
Ég trúi ekki á orðin þín,
:,: ef annað segja stjörnur tvær:,:.
Aftur á upphafssíðu

Hreðavatnsvalsinn
Höfundur lags: Knútur R. Magnússon. Höfundur texta: Atli S. Þormar.
Úti við svalan sæinn
syng ég mín ástarljóð,
dýrðlegum dagsins draumum í
dvel ég við forna slóð.
Þú varst minn æskuengill,
ást mín var helguð þér.
Þegar ég hugsa um horfna tíð,
hugur minn reika fer.
Manstu hve gaman,
er sátum við saman
í sumarkvöldsins blæ,
sól var sest við sæ,
svefnhöfgi' yfir bæ.
Við hörpunnar óma
í hamingjuljóma,
þá hjörtu' okkar börðust ótt,
allt var orðið hljótt,
yfir færðist nótt.
Dreymandi' í örmum þér,
alsæl ég gleymdi mér,
unaði fylltist mín sál.
Brostirðu blítt til mín,
blikuðu augun þín,
birtu mér huga þíns mál.
Manstu hve gaman,
er sátum við saman
í sumarkvöldsins blæ,
sól var sest við sæ,
svefnhöfgi' yfir bæ.
Manstu hve gaman,
er sátum við saman
í sumarkvöldsins blæ,
sól var sest við sæ,
svefnhöfgi' yfir bæ.
Aftur á upphafssíðu

Kötukvæði
Höfundur lags: Will Grosz. Höfundur texta: Sigurður Ágústsson frá Birtingarholti.
Það var um kvöld eitt að Kötu ég mætti.
Hún var að koma af engjunum heim.
Það var í ágúst að áliðnum slætti
og nærri aldimmt á kvöldunum þeim.
Hún var svo ung eins og angandi rósir.
Ég hafði aldrei séð hana fyrr.
Um vanga dönsuðu lokkarnir ljósir
og augun leiftruðu þögul og kyrr.
Hlýtt ég tók í hönd á Kötu,
horfði’ í augun djúp og blá.
Gengum síðan burt af götu,
geymdi okkur náttmyrkrið þá.
En þegar eldaði aftur og birti
í hjarta ákafan kenndi ég sting,
og fyrir augum af angist mig syrti.
Hún var með einfaldan giftingarhring.
Hlýtt ég tók í hönd á Kötu,
horfði’ í augun djúp og blá.
Gengum síðan burt af götu,
geymdi okkur náttmyrkrið þá.
En þegar eldaði aftur og birti
í hjarta ákafan kenndi ég sting,
og fyrir augum af angist mig syrti.
:,:Hún var með einfaldan giftingarhring:,:.
Aftur á upphafssíðu

Lítill fugl
Höfundur lags: Sigfús Halldórsson. Höfundur texta: Örn Arnarson.
Lítill fugl á laufgum teigi
losar blund á mosasæng,
heilsar glaður heiðum degi
hristir silfurdögg af væng.
Flýgur upp í himinheiðið,
hefir geislastraum í fang,
siglir morgunsvala leiðið,
sest á háan klettadrang.
Þykist öðrum þröstum meiri,
þenur brjóst og sperrir stél,
vill að allur heimur heyri,
hvað hann syngur listavel.
Skín úr augum skáldsins gleði,
skelfur rödd við ljóðin ný,
þó að allir þrestir kveði
þetta sama dirri-dí.
Þykist öðrum þröstum meiri,
þenur brjóst og sperrir stél,
vill að allur heimur heyri,
hvað hann syngur listavel.
Litli fuglinn ljóða vildi
listabrag um vor og ást.
:,:Undarlegt að enginn skyldi
að því snilldarverki dást:,:.
Aftur á upphafssíðu

Litla flugan
Höfundur lags: Sigfús Halldórsson. Höfundur texta: Sigurður Elíasson.
Lækur tifar létt um máða steina.
Lítil fjóla grær við skriðufót.
Bláskel liggur brotin milli hleina.
Í bænum hvílir íturvaxin snót.
Ef ég væri orðinn lítil fluga,
ég inn um gluggann þreytti flugið mitt,
og þó ég ei til annars mætti duga,
ég eflaust gæti kitlað nefið þitt
Lækur tifar létt um máða steina.
Lítil fjóla grær við skriðufót.
Bláskel liggur brotin milli hleina.
Í bænum hvílir íturvaxin snót.
Ef ég væri orðinn lítil fluga,
Ég inn um gluggann þreytti flugið mitt,
og þó ég ei til annars mætti duga,
:,:ég eflaust gæti kitlað nefið þitt:,:.
Aftur á upphafssíðu

Ljúfa Anna
Höfundur lags: Harry Dacre. Höfundur texta: Harry Dacre.
Ljúfa Anna, láttu mig vissu fá.
Þú ein getur læknað mín hjartasár.
Í kvöld er ég sigli' á sænum
í svala, ljúfa blænum,
æ, komdu þá svo blíð á brá
út í bátinn mér einum hjá.
Ljúfa Anna, láttu mig vissu fá.
Þú ein getur læknað mín hjartasár.
Í kvöld er ég sigli' á sænum
í svala, ljúfa blænum,
æ, komdu þá svo blíð á brá
út í bátinn mér einum hjá.
Aftur á upphafssíðu
Ó, María, mig langar heim
Höfundur lags: Tills Wilkins. Höfundur texta: Ólafur Gaukur Þórhallsson.
Hann sigldi út um höfin blá í sautján ár
og sjómennsku kunni hann upp á hár,
Hann saknaði alla tíð stúlkunnar
og mynd hennar stöðugt í hjarta hann bar.
Ó, María, mig langar heim,
ó, María, mig langar heim,
því heima vil ég helst vera.
ó, María, hjá þér.
Í höfnum var hann hrókur mikils fagnaðar
hann heillaði þar allar stúlkurnar.
En aldrei hann meyjarnar augum leit
það átti ekki við hann að rjúfa sín heit.
Ó, María, mig langar heim,
ó, María, mig langar heim,
því heima vil ég helst vera,
ó, María, hjá þér.
Loks kom að því hann vildi halda heim á leið,
til hennar, sem sat þar og beið og beið.
Hann hætti til sjós, tók sinn hatt og staf
og heimleiðis sigldi um ólgandi haf.
Ó, María, mig langar heim,
ó, María, mig langar heim,
því heima vil ég helst vera,
ó, María, hjá þér.
En fleyið bar hann aldrei heim að fjarðarströnd.
Hann siglir ei lengur um ókunn lönd.
En María bíður og bíður enn,
hún bíður og vonar hann komi nú senn.
Ó, María, mig langar heim,
ó, María, mig langar heim,
því heima vil ég helst vera,
ó, María, hjá þér.
Aftur á upphafssíðu

Rósin
Höfundur lags: Friðrik Jónsson. Höfundur texta: Guðmundur Halldórsson.
Undir háu hamrabelti
höfði drúpir lítil rós.
þráir lífsins vængjavíddir
vorsins yl og sólarljós.
Ég held ég skynji hug þinn allan
hjartasláttinn rósin mín.
Er kristalstærir daggardropar
drjúpa milt á blöðin þín.
Æsku minnar leiðir lágu
lengi vel um þennan stað,
krjúpa niður kyssa blómið
hversu dýrðlegt fannst mér það.
Finna hjá þér ást og unað
yndislega rósin mín.
Eitt er það sem aldrei gleymist,
aldrei það er minning þín.
Æsku minnar leiðir lágu
lengi vel um þennan stað,
krjúpa niður kyssa blómið
hversu dýrðlegt fannst mér það.
Finna hjá þér ást og unað
yndislega rósin mín.
Eitt er það sem aldrei gleymist,
aldrei það er minning þín.
Finna hjá þér ást og unað
yndislega rósin mín.
Eitt er það sem aldrei gleymist,
aldrei það er minning þín.
Aftur á upphafssíðu

Sem lindin tær
Höfundur lags: Casano County. Höfundur texta: Bjarki Árnason.
Ó hve gott á lítil lind,
leika frjáls um hlíð og dal,
líða áfram létt sem hind,
líta alltaf nýja mynd.
Hvísla ljóð' að grænni grein,
glettast ögn við lítil blóm,
lauma koss' á kaldan stein,
kastast áfram tær og hrein.
Ég vildi að ég væri eins og þú
og vakað gæti bæði daga og nætur,
þá öllu skyldi kveða óð um unað, ást og trú
sem aldrei bregst en hugga lætur.
Já, ef ég mætti lifa eins og lindin silfurtær
sem lög á sína undrastrengi slær.
Hvísla ljóð' að grænni grein,
glettast ögn við lítil blóm,
lauma koss' á kaldan stein,
kastast áfram tær og hrein.
Ég vildi að ég væri eins og þú
og vakað gæti bæði daga og nætur,
þá öllu skyldi kveða óð um unað, ást og trú
sem aldrei bregst en hugga lætur.
Já, ef ég mætti lifa eins og lindin silfurtær
sem lög á sína undrastrengi slær.
Já, ef ég mætti lifa eins og lindin silfurtær
sem lög á sína undrastrengi slær.
Aftur á upphafssíðu

Undir bláhimni
Höfundur lags: Sam C. Hart. Höfundur texta: Magnús Kr. Gíslason frá Vöglum.
Undir bláhimni blíðsumars nætur
barst’ í arma mér rósfagra mey.
Þar sem döggin í grasinu grætur,
gárast tjörnin í suðrænum þey.
Ég var snortinn af yndisleik þínum,
ástarþráin er vonunum felld.
Þú ert ljósblik á lífshimni mínum,
þú ert ljóð mitt og stjarna í kveld.
Ég vil dansa við þig, meðan dunar
þetta draumblíða lag, sem ég ann.
Meðan fjörið í æðunum funar
og af fögnuði hjartans, er brann.
Og svo dönsum við dátt, það er gaman,
meðan dagur í austrinu rís.
og svo leiðumst við syngjandi saman
út í sumarsins paradís.
Já, út í sumarsins paradís.
Aftur á upphafssíðu
Vertu til er vorið kallar á þig
Höfundur lags: B. Rubaschkin. Höfundur texta: Tryggvi Þorsteinsson.
Vertu til, er vorið kallar á þig,
vertu til að leggja hönd á plóg.
Komdu út, því að sólskinið vill sjá þig
sveifla haka, rækta nýjan skóg.
Komdu út, því að sólskinið vill sjá þig
sveifla haka, rækta nýjan skóg.
Vertu til, er vorið kallar á þig,
vertu til að leggja hönd á plóg.
Komdu út, því að sólskinið vill sjá þig
sveifla haka, rækta nýjan skóg.
Komdu út, því að sólskinið vill sjá þig
sveifla haka, rækta nýjan skóg.
Aftur á upphafssíðu

Viltu með mér vaka
Höfundur lags: Hendrik Konrad Rasmus. Höfundur texta: Valborg Bentsdóttir.
Viltu með mér vaka' í nótt,
vaka' á meðan húmið hljótt
leggst um lönd og sæ,
lifnar fjör í bæ,
viltu með mér vaka' í nótt?
Vina mín kær,
vonglaða mær,
ætíð ann ég þér,
ást þína veittu mér
aðeins þessa einu nótt.
Viltu með mér vaka' í nótt
vaka' á meðan húmið hljótt
leggst um lönd og sæ,
lifnar fjör í bæ,
viltu með mér vaka' í nótt?
Vina mín kær,
vonglaða mær,
ætíð ann ég þér,
ást þína veittu mér
aðeins þessa einu nótt.
Aftur á upphafssíðu
Þannig týnist tíminn
Höfundur lags: Bjartmar Guðlaugsson. Höfundur texta: Bjartmar Guðlaugsson.
Líkt og ástarljóð sem enginn fékk að njóta,
eins og gulnað blað sem geymir óræð orð,
eins og gömul hefð sem búið er að brjóta,
þar er ég, þar ert þú,
þar er allt það sem ástin okkur gaf
Þannig týnist tíminn, þannig týnist tíminn,
þannig týnist tíminn þó hann birtist við og við.
Líkt og sumarást sem aldrei náði að blómstra,
líkt og tregatár sem geymir falleg bros,
þarna er gömul mynd sem sýnir glaðar stundir,
þar er ég, þar ert þú,
þar er allt það sem ástin okkur gaf.
Þannig týnist tíminn, þannig týnist tíminn,
þannig týnist tíminn þó hann birtist við og við.
Þannig týnist tíminn, þannig týnist tíminn,
þannig týnist tíminn þó hann birtist við og við.
Líkt og mynd sem bjó í vonarlandi þínu,
eins og æskuþrá sem lifnar við og við,
býr þar sektarkennd sem að ennþá nær að særa,
þar er ég, þar ert þú,
þar er allt það sem ástin okkur gaf.
Þannig týnist tíminn, þannig týnist tíminn,
þannig týnist tíminn þó hann birtist við og við.
Þannig týnist tíminn, þannig týnist tíminn,
þannig týnist tíminn þó hann birtist við og við.
Líkt og ástarljóð sem enginn fær að njóta,
endar sem gulnað blað er geymir óræð orð,
eins og gamalt heit sem búið er að brjóta,
þar er ég, þar ert þú,
þar er allt það sem ástin okkur gaf.
Aftur á upphafssíðu
